6.2.2010 | 19:47
Kominn heim
Ég er kominn heim. Kom heim í dag og gengur nokkuð vel. Ég er pínu viðkvæmur og búinn að vera lítill í mér af og til en það er yndislegt að vera kominn heim í mitt eigið rúm. Er háður öndunarvélinni minni ennþá og það verða bara tekin hænuskref í að venja mig af henni aftur. Silja stóra systir fékk að fara með mér og mömmu í sjúkrabílnum á leiðinni heim, það fannst henni sko spennandi.
Nokkrar myndir frá gjörgæslunni:
Athugasemdir
Æ hvað það er gott að þú skulir vera kominn heim elsku kútur :) Þú ert mesta hetjan... Knús á þig og alla í fjölskyldunni
Halla og fjölsk (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 22:06
Yndislegt að heyra!
Freyja Haraldsdóttir, 6.2.2010 kl. 23:40
Gott að þú sért kominn heim í kotið, hafið það nú notalegt.
Kv, Eva og co
Eva Hrund og co (IP-tala skráð) 7.2.2010 kl. 00:34
Flott að þú ert kominn heim fallegi snáði
Ragnheiður , 7.2.2010 kl. 11:55
Velkomin heim sætilíus :)
Hjördís Ósk (IP-tala skráð) 7.2.2010 kl. 20:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.