Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

FRÍ

Takk allir fyrir allar kveðjurnar, mjög gaman að sjá hverjir eru að kíkja á mig.

Búið að ganga nokkuð vel síðan síðast.  Er búinn að vera í hvíldarinnlögn á spítalanum síðan á þriðjudag í mjög góðu yfirlæti þar.  Kem svo heim á morgunn, mamma er orðin ansi spennt að fá mig aftur heim, er að gera allt fínt fyrir prinsinn sinn.  Gömlu skötuhjúin eru nú búin að sakna mín ansi mikið og finnst mjög tómlegt heima en þau eru nú búin að heimsækja mig nokkrum sinnum þessa vikuna.  Þetta var fyrsta hvíldarinnlögnin mín en nú á þetta að verða mánaðarlegt plan hjá mér, ekki slæmt það, það er aldeilis dekrað við mig á spítalanum, er sko aðal prinsinn á staðnum Cool

 

Já svo eru komin nokkur ný albúm inn á Barnalandssíðuna okkar Wizard

 


Er betri

Ég er að jafna mig á þessari flensupest, var bara með nokkrar kommur í morgunn og mun hressari.  Sýklalyfin gera sko sitt gagn Smile

Endilega svo allir að kvitta hjá mér, langar að sjá hverjir eru að skoða Wink


Ný síða :)

Ákváðum að færa okkur um set, blogcentral var alltaf að detta út. 

Er búinn að vera frekar slappur í dag, með hitavellu og vesen.  Er kominn á sýklalyf og vonandi ná þau að koma í veg fyrir frekari veikindi.  Er búinn að sofa mikið í dag og get lítið verið án BiPabs, en mér líður nú alveg ágætlega á því.  

Krossum putta og tær, nenni varla að fara á spítalann núna Crying


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband