Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010
20.8.2010 | 22:21
Atlantsolía styrkir Ragnar Emil
Það var hringt í okkur um daginn frá Atlantsolíu. Þeir eru svo yndislegir hjá Atlantsolíu að þeir ætla að hlaupa fyrir mig í hlaupinu á morgun. Þeir vilja styrkja minni "málefni" og ákváðu að styrkja mig í ár. Kærar þakkir Atlantsolía og gangi ykkur vel í hlaupinu, við ætlum að reyna að kíkja eitthvað á hlauparana ef veður leyfir.
Sumarið er búið að vera gott. Miklar framkvæmdir hafa verið heima hjá okkur og erum við loksins búin að setja upp heita pottinn okkar sem okkur var gefinn fyrir tveimur árum síðan og pallurinn orðinn ansi fínn hjá okkur. Ég er búinn að fara nokkrum sinnum í pottinn og hreinlega elska að vera svona í heitu vatninu :)
Nú er allt sumarfrí búið og flestir komnir aftur til vinnu. Nú byrjar púlið á ný. Leikskólinn byrjaður, sjúkraþjálfarinn kominn úr fríi, iðjuþjálfinn, þroskaþjálfinn, stoðtækjafræðingurinn og allt heila klabbið byrjað að vinna í mínum málum á ný. Það er bara gaman, fullt af nýjum hlutum á döfinni og margt skemmtilegt framundan.
Hér er ein mynd síðan úr afmælinu mínu, var ekki upp á mitt besta þann daginn og fékk því að liggja í rúminu mínu á meðan sunginn var afmælissöngurinn:
Vildi bara aðeins láta heyra í mér, er í góðum gír.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)