9.7.2009 | 23:45
Stór dagur :)
Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur undanfarið.
Afmælisveislurnar mínar tvær gengu eins og í sögu, ég var alsæll með allt saman, fékk helling af gjöfum, fullt af yndislegu fólki heimsótti mig og svo fékk ég pínu kökukrem í smakk, nammnamm.
Hér er ég að opna pakka, þvílíkt fjör :)
Ella yndislega mín að knúsa mig og kjassa :)
Að sjálfsögðu fékk ég þessa fínu blöðru Ég elska blöðrur og á mjög auðvelt með að sveifla þeim til eða frá. Mamma hengdi afmælisblöðru á stólinn minn og var hún eiginlega mesta fjörið í afmælinu.
Svo sungu allir fyrir mig afmælissönginn, ekkert smá gaman. Hér er fjölskyldan og hjúkkur úr fyrra afmælinu. Silja hjálpaði mér svo að blása á fínu Doru kökuna mína :)
Hér er svo glæsilega Dóru og Klossa kakan mín Ég elsku Dóru þættina mjög mikið og þess vegna fékk ég Dóru afmælisveislu ;)
Já og hér fékk ég smá krem í munninn. Fannst það smá skrítið, brosti smá þegar ég fékk bragðið en gretti mig svo og slefaði því svo út úr mér. Er ekki alveg að fatta þetta að borða dæmi, ferlega fyndið.
Já og svo út af því að það er alltaf gott veður í afmælisveislum hjá okkur þá fékk ég að skreppa út á pall í veðurblíðuna. Alsæll með afmælisveislurnar mínar og takk allir kærlega fyrir mig. Og þið sem senduð okkur kveðjur, þúsund kossar og knús til ykkar :)
Um síðustu helgi fór ég svo í aðra helgardvölina mína í Rjóðri. Það gekk líka svona vel eins og í fyrra skiptið og bræddi ég að sjálfsögðu alla upp úr skónum. Ég fer svo aftur um miðjan ágúst yfir helgi og í september byrja ég svo á vikudvöl í einu.
Í fyrradag heimtaði Siggi stóri flotti bróðir minn að nú væri kominn tími til að losna við hjálparadekkin sín. Og því tók pabbi sig til og tók hjálparadekkin af og líka á Silju hjóli. Þetta var enga stund að koma og nú hjóla systkinin hérna út um allar trissur án hjálparadekkja, svaka dugleg og flott.
Siggi flottastur með hjólið sitt og engin hjálparadekk, duglegastur :)
Það er nú eins gott að hafa öryggismálin á hreinu og Siggi passar upp á að hafa hjálminn sinn og hlífarnar ;)
Siggi fór til læknis í gær því hann hrýtur svo svakalega litla greyið, hehe. Og það er ástæða fyrir því, rífa þarf úr honum hálskirtlana og það verður gert í ágúst. Svo er hann kominn í sumarfrí frá leikskólanum og byrjar aftur 6. ágúst þá komin í bláa hóp á Hóli sem er hópurinn fyrir stóru og flottu krakkana
Silja skott er líka komin í sumarfrí. Hún reyndar kvaddi leikskólann sinn á mánudaginn síðastliðinn og mun ekki fara aftur. Hún kvaddi glöð og sæl en mamman með talsverðum trega en hún byrjar í fyrsta bekk í ágúst.
Svo hrynja úr henni tennurnar, fimmta tönnin hrundi fyrir stuttu. Hér er Silja með hálf götóttan munn, hehe.
Og vitiði bara hvað !!! Ég fékk að fara út í dag, út á götu í smá göngutúr, jibbý. Loksins, loksins eru kerrumálin komin í lag. Ný, glæsileg kerra er komin til okkar, sérmótið úr gamla stólnum passaði svona fínt í kerruna. Afi Bóbó reddaði þessum fína bakka undir kerruna á augabragði og pabbi búin að græja batterí og inverter og alls kyns græjudót svo að öll tækin mín komast nú undir kerruna. Þá var bara ekki til setunnar boðið nema skella sér út í ferska loftið. Og vá hvað það var yndislegt, hef ekki farið út, nema rétt út á pall eða út í sjúkrabíl, í meira en heilt ár.
Glæsilega kerran mín og tækin mín með :) Vantar reyndar nokkur tæki en þetta eru þessi helstu sem ég get alls ekki verið án :)
Frekar bjart fyrir mig, er ekki alveg vanur allri þessari birtu en sólgleraugun voru eðal :) Frábært alveg að komast aðeins út og ekki skemmdi góða veðrið í dag.
Já stór dagur fyrir mig og mína
Jæja, eflaust lengsta myndasyrpa frá upphafi en við kveðjum í bili og látum vita af okkur aftur sem fyrst.
Sumarknús frá okkur öllum á Kvistavöllunum.
Athugasemdir
Fyrir allt þetta færðu allt er ég kann, og allt er ég kann ekki.
Ég kann bara eitt svar..það er hægt.
Ég veit ekkert hvað ég á að segja..elsku barn.
hart (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 23:55
Til hamingju með allt saman, afmælið, nýja kerru-kaggann og göngutúrinn Snilldin ein!
Freyja Haraldsdóttir, 9.7.2009 kl. 23:58
Flottur úti að labba og snilldargræja nýja kerran þín, til hamingju með afmælið og veislurnar. Þetta hefur verið gaman.
Knús á línuna...á duglegu systkinin þín og mömmu og pabba. Láttu systur segja sjöhundruðsjötíuogsjö meðan munnurinn er svona götóttur hehe. Bróðir er snjall að passa upp á öryggisdæmið, þannig á maður einmitt að gera
Ragnheiður , 10.7.2009 kl. 00:18
Rosalega gaman að lesa svona góðar og skemmtilegar fréttir. Vonandi gengur svo áfram svona vel. kv úr sólini á Selfossi
Ágústa mamma Ásgeirs (IP-tala skráð) 10.7.2009 kl. 19:17
Þið eruð flottustu systkinin
Æðislegar myndir
Knús frá Hvammstanga
Ingunn , 10.7.2009 kl. 22:20
Til hamingju með afmælið og alla stórmerkilegu hlutina sem eru að gerast í lífi fjölskyldunnar. Gaman að fylgjast með ykkur úr fjarlægð.
Sólarkveðjur frá Sauðárkróki,
SG
Sigríður Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 11.7.2009 kl. 19:11
Rosalega flott nýja kerran þín og gott að þú getir nú loksins farið út í göndutúr í góða veðrinu. Siggi og Silja líka voðalega dugleg að sleppa hjálparadekkjunum á hjólunum sínum. Við biðjum rosalega vel að heilsa.
Kv, Eva og co
Eva Hrund (IP-tala skráð) 12.7.2009 kl. 21:12
Hæ Ragnar Emil svo gaman að heyra allar þessar góðu fréttir af ykkur öllum frábært að kerran þín sé tilbúin knús á ykkur öll kær kveðja fjölskyldan Hraunstíg
Anna María Þorláksdóttir (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 00:34
Vá til hamingju með flottu kerruna þína ! Kannski sjáumst við bara hérna einhvern góðan sólardaginn á röltinu á Völlunum :) Það hefur greinilega verið gaman í afmælinu líka.
Hafið það rosalega gott, kv. Hjördís og strákarnir C",)
Hjördís Ósk (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 23:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.