Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
30.3.2009 | 13:41
FRÍ
Takk allir fyrir allar kveðjurnar, mjög gaman að sjá hverjir eru að kíkja á mig.
Búið að ganga nokkuð vel síðan síðast. Er búinn að vera í hvíldarinnlögn á spítalanum síðan á þriðjudag í mjög góðu yfirlæti þar. Kem svo heim á morgunn, mamma er orðin ansi spennt að fá mig aftur heim, er að gera allt fínt fyrir prinsinn sinn. Gömlu skötuhjúin eru nú búin að sakna mín ansi mikið og finnst mjög tómlegt heima en þau eru nú búin að heimsækja mig nokkrum sinnum þessa vikuna. Þetta var fyrsta hvíldarinnlögnin mín en nú á þetta að verða mánaðarlegt plan hjá mér, ekki slæmt það, það er aldeilis dekrað við mig á spítalanum, er sko aðal prinsinn á staðnum 
Já svo eru komin nokkur ný albúm inn á Barnalandssíðuna okkar 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.3.2009 | 15:23
Er betri
Ég er að jafna mig á þessari flensupest, var bara með nokkrar kommur í morgunn og mun hressari. Sýklalyfin gera sko sitt gagn 
Endilega svo allir að kvitta hjá mér, langar að sjá hverjir eru að skoða 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
17.3.2009 | 22:02
Ný síða :)
Ákváðum að færa okkur um set, blogcentral var alltaf að detta út.
Er búinn að vera frekar slappur í dag, með hitavellu og vesen. Er kominn á sýklalyf og vonandi ná þau að koma í veg fyrir frekari veikindi. Er búinn að sofa mikið í dag og get lítið verið án BiPabs, en mér líður nú alveg ágætlega á því.
Krossum putta og tær, nenni varla að fara á spítalann núna 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)


Dísa Dóra
Guðlaug Birna Björnsdóttir
Ingunn
Ingveldur Theodórsdóttir
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
Ragnheiður
Áslaug Helga Hálfdánardóttir
Áslaug Ósk Hinriksdóttir
Brosveitan - Pétur Reynisson
Elva Björg Egilsdóttir
Fanney Edda Frímannsdóttir
Fjóla Æ.
Matti sax