Til hamingju Siljan mín :)

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún er 6 ára hún Silja, hún á afmæli í dag WizardHeartWizard

Silja systir er 6 ára í dag og við tókum daginn snemma og vöknuðum fyrr en vanalega svo við gætum haft pakkastund og smá leik áður en Silja þyrfti að rjúka í skólann.  Já, allir nema ég, ég sef ennþá Sleeping

Silja var yfir sig ánægð með gjafirnar og Siggi fékk smá pakka líka, því hann er búinn að vera svo duglegur.

Ég er orðinn miklu hressari, gat verið talsvert í gær án BiPabs og var í mjög góðu skapi.  Brosti út að eyrum og dillaði mér mikið.  Nú liggur leiðin bara upp á við.  

Seinnipartinn mæta svo hér galvaskar 6 ára stelpur í afmæli til Silju, það verður líf og fjör GrinInLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með stóru systur. Frábært að heyra hvað þú ert að verða góður. Hafðu það rosa gott  Biðjum að heilsa.

Anna María, Gummi og Inga Lilja (IP-tala skráð) 15.10.2009 kl. 08:43

2 Smámynd: Ragnheiður

til hamingju með afmælið Silja

Ragnheiður , 15.10.2009 kl. 22:20

3 identicon

Sæll, elsku kallinn.

Ég vildi bara segja takk fyrir síðast.

Það var gott að sjá hvað þú ert orðinn hress og þú spjallaðir heilmikið við ömmu í afmælinu á laugardaginn. Amma og afi þurfa að koma fljótlega í heimsókn og spjalla við ykkur.

Sjáumst fljótlega.

Amma og afi á Skaganum.

Áslaug Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2009 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband