Hvert fór sumarið?

Jæja, við erum búin að vera eitthvað svo blogglöt undanfarið en allt hefur verið í ágætis standi hjá okkur.  Júlí og ágúst hafa hreinlega flogið framhjá okkur og haustið skollið á. 

Ég er búinn að vera í góðum gír undanfarið, fengið smá kvefpestir en ekkert sem sýklalyf vinna ekki á.  Var í Rjóðrinu í 4 daga um daginn og gekk það ágætlega.  Kann nokkuð vel við mig þar, starfsfólkið er yndislegt en það lenti í smá basli með mig einn morguninn.  Þær náðu mér þó upp og þurftu bara að vera meira á tánum með mig þessa helgi heldur en áður.  Ég var nú bara aðeins að tékka á viðbrögðunum, passa að enginn færi að verða kærulaus með mig ;)

Nú er allt að komast í réttar skorður.  Silja stóra systir mín er að byrja í 1. bekk, þvílík spenna á heimilinu.  Siggi er byrjaður í leikskólanum en hann er að fara í smá frí því hann fer í hálskirtlatöku á morgunn.  Í lok september fer ég svo í vikudvöl í Rjóðrið og verð svo framvegis í viku í einu í hverjum mánuði, bara gaman Smile

Í næstu viku ætlar að koma til mín talmeinafræðingur og reyna að fá mig til að tala eitthvað, iss eins og ég þurfi að segja eitthvað.  Það er nú alltaf hlaupið upp til handa og fóta þegar ég gef frá mér hin minnstu hljóð hehe.  En mömmu og pabba langar svo að fá mig til að tala þannig að ég ætla að reyna bara fyrir þau Cool Þóranna mín, þroskaþjálfi, verður svo okkur innan handar með þetta allt saman.

Ég skal reyna að fá ritarana mína til að bæta sig í skrifunum, skrifa oftar og henda inn myndum sem fyrst.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ, hæ.

Alltaf gaman að fá fréttir af þér elsku Ragnar Emil. Haltu áfram að standa þig eins og hetja og gangi þér súpervel með talmeinafræðinginum.

Biðjum að heilsa fjölskyldunni þinni.

Anna María, Gummi og Inga Lilja (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 09:25

2 identicon

Sæll, elsku kallinn.

Alltaf gaman að fá fréttir af ykkur og ég tala nú ekki um þegar allt gengur svona vel. Það er greinilega mikið um að vera hjá ykkur. Vonandi gengur allt vel hjá stóra bró í kirtlatökunni. Amma krossar fingur fyrir hann. Svo veit ég að þú verður fljótur að kveða alla í kútinn þegar talmeinafræðingurinn er búinn að spjalla svolítið við þig.

Bið að heilsa öllum

Amma Áslaug

Áslaug Rafnsdóttir (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 20:53

3 Smámynd: Ingunn

Gott að allt gengur vel og gaman að fá fréttir af þér og þínum

Knú og kossar frá Hvammstanga

Ingunn , 26.8.2009 kl. 00:44

4 identicon

Sæll Ragnar Emil

Gott að heyra að allt gangi vel hjá þér frábært að það sé að koma talmeinafræðingur til þín og spennandi ég fylgist spennt með því

vonandi gengur vel hjá Sigga biðjum að heilsa honum og Silju skólastelpu ooo það er svo gaman að byrja í skóla.

Kær kveðja frá okkur á Hraunstíg

Anna María Þorláksdóttir (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 10:04

5 Smámynd: Ragnheiður

Gott að sjá svona flotta vetraráætlun og yndislegt að sjá að þú ert í flottu formi, flottastur !

Ragnheiður , 1.9.2009 kl. 13:44

6 identicon

Frábært að allt gengur vel og þið getið farið út að labba. Hlakka til að heyra hvernig gegnur með málörvunina. kv Ágústa

Ágústa mamma Ásgeirs (IP-tala skráð) 3.9.2009 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband